Lifting & Recovery Cream

Precio de venta Precio 10.990 kr Precio habitual Precio unitario  por 

Impuesto incluido.
Lifting Recovery Cream - Andlitslyfting í krukku!

Lifting Recovery Cream er algjör bomba fyrir húð sem er byrjuð að slakna og tapa orku!
Sérlega endurnýjandi og nærandi krem sem hefur lyftandi áhrif á slaka húðvefi.
Ríkulegt magn af A-Vítamíni og Hafrapróteini örva náttúrulega framleiðslu húðar á kollagen- og elastinþráðum sem sjá um að viðhalda stinnleika og fyllingu „plump“ í húðinni ásamt því að veita henni aukna orku og seiglu gegn þyngdarafli tímans!
A-Vítamín hefur lengi verið notað í krem og meðferðum bæði hjá læknum og snyrtifræðingum vegna mikillar virkni og sýnilegs árángurs á húð, en það er einstaklega endurnýjandi og örvandi fyrir náttúrulega starfsemi húðarinnar og betrumbætir húðstrúktur svo um munar. Frábært orkuskot fyrir krefjandi húðgerðir, sléttir og dregur saman fínar línur, fyrirbyggir og hægir á öldrun húðarinnar, viðheldur stinnleika og fyllingu, jafnar litarhátt og gefur hraustlegan húðlit og ljóma.